Við skelltum okkur auðvitað aðeins í hamarinn af og til í sumar, sem er nú varla frásögum færandi nema kannski núna þegar það er gúrkutíð fjallamanna vegna veðursins. Eins og Addi orðar það svo skemmtilega að haustin eru tími afmælanna og brennivínsins.

En við erum orðnir óþreyjufullir að komast í smá meira action þar sem veturinn nálgast. Ég tók til nokkrar myndir úr einhverjum ferðum í Valshamar síðan í sumar svona til að halda smá lífi í þessu. Var að prufa mig áfram með ljósmyndatækni í klifri og er kominn með ágætis tækni í 'ljósmyndaralínu'. Allavega var ég aðeins að prufa þetta í hamrinum í sumar og tókst ágætlega til. Hlakka mikið til að nota þetta í vetrarklifrinu nú þegar byrjar að kólna.

Set hér inn nokkrar af þeim myndum sem við tókum.

Myndir

Addi
Addi klippir sig inn
Scanning.Scanning.
Næsti tvistur.
Hann er nú ekki langur, en hann getur teygt úr sér.
Svo gat ég nú ekki annað en hengt Adda í línuna og fengið smá myndir af sjálfum mér.
Geymd en ekki gleymd þrususkemmtileg leið.
Addi að kíkja.
Sprungudjamm.
Æi.. þessi er nú hálf klúðursleg, en læt hana flakka með..
Óðinn klifrar sömu leið. Hann var nú reyndar á undan, en það skiptir nú varla máli.
Áfram klifrar hann.
Smá svona arty farty...
Djamm.
Addi fer yfir nefið.
Gummi í sömu leið.
Óðinn passaði vel uppá að horfa ekki í átt að myndavélinni þegar hann var í einhverri klifurstöðu, en ég skaut nú samt af honum.