Það kom að því að veðrið skánaði aðeins í vor og í tilefni þess skelltum við okkur í Heljaregg í vesturbrúnum Esju. Enn aftur var planið að fara austur í Skaftafell, en veðurspáin slóg það útaf borðinu. Veðrið hér í bænum var hinsvegar með besta móti og skelltum við Addi okkur í Heljaregg þar sem við lásum nú flotta lýsingu á þeirri leið á isalp vefnum í haust.

Við vissum auðvitað ekkert hvað við vorum að fara útí, vorum með helling af klettadóti með okkur, vinasett, 2 hentusett, hexur, fleyga, tri-cams og fylgihluti...
Klifrið reyndist alls ekki erfitt, en leiðin var þó frekar óþægileg fyrir sálarlífið þar sem stundum var langt niður.

Flott nöfn á stöðum eins og "eistnasnýkir" stóð uppúr ferðinni, en það var klettasylla sem ég vildi kalla þessu nafni þar sem örstutt klettaspönn tók við en gott fall báðu megin niður ef eitthvað hefði gerst. Ég ætlaði nú aldeilis að taka á þessu og sannfærði Adda um að taka þessa spönn þar sem ég væri nú búinn að leiða síðustu tvær en þurfti svo aldeilis að éta það ofaní mig þegar næsta spönn reyndist svo töluvert óþægilegri :)

En annars er leiðin ótrúlega flott, alls ekki tæknilega erfið en tekur svoldið á andlega partinn þar sem hátt er niður sumsstaðar, og á einum stað eru léleg tryggingastæði en sem betur fer góð grip í staðinn...

klifra en hér kemur það sem tekið var:

Myndir

Heljareggin er hryggurinn hægra megin við miðja mynd.
Addi að greiða úr línuflækjunni sinni.
Hér er svo Addi í einni spönninni alveg neðst í leiðinni... það hefði etv. mátt sleppa að tryggja þetta, en við þekktum ekki leiðina þannig að við línulékum
alveg frá fyrsta klett.
Aðeins farnir að hækka okkur þarna, samt ekki næstum því hálfnaðir.
Addi með Kjalarnes í baksýn.
Varð nú að fá sönnun fyrir því að ég hafi nú verið þarna... Við vorum léttir á því og vissum ekkert hvað tæki við.
Og upp héldum við. Það er svoldið laust í þessu sumsstaðar, en þetta er nú einusinni Ísland.
Addi að koma í stans við Eistnasnýki, en það eina sem mér datt í hug að spyrja hann hvort hann væri ekki með eistun í næstu spönn og hann tæklaði hana
aldeilis vel.
Hér er Addi í einni spönninni, þetta er alls ekki erfitt en myndin lýsir engan vegin útsýninu niður...
Smá svona artý-fartí fílingur í kaupbæti...
Komnir upp á eina sylluna fyrir ofan lykilhluta leiðarinnar, við tókum samt ekki turninn á toppnum, hann verður að bíða betri tíma.
Hér er ég að gera upp línurnar fyrir hliðrunina á milli klettanna, svo tóku við smá spannir (meiraaðsegja með ís í) uppá brún.
Hér er Addi svo að koma uppá brúnina, kletturinn þarna í bak er tindurinn fyrir ofan Heljaregg. Klifruðum hann ekki í þetta skiptið, enda frekar seint á ferð, en
við komum ekki í bæinn fyrren um miðnætti !