Við erum búnir að fara 2 hellaferðir nú í haust eftir að hafa skoðað íslensku Hellahandbókina eftir Björn Hróarsson en við skruppum í Tanngarðshelli eftir vinnu einn daginn og svo laugardaginn 26. sept fórum við svo í Búra ofan Þorlákshafnar.

Tanngarðshellir er stuttur, en mjög flottur hellir, þar eru fallegar myndanir og litir í hrauninu að maður vart getur ýmindað sér. En hann er frekar stuttur og því hægt jafnvel að skoða nærliggjandi hella í leiðinni ef maður hefur tíma. Hann heimsóttu Gummi St, Addi og Davíð kvöldið 15. sept.

Búra heimsóttu Gummi St, Addi, Óðinn, Davíð og Hafsteinn laugardaginn 26. sept. Búri er víst með merkilegri hellum sem fundist hafa og það var ekki fyrren árið 2005 sem farið var að fikta í honum! Guðmundur nokkur frá Þorlákshöfn fann hann með því að róta til grjóti frá hellismunanum en hálf þröngt er að fara niður í hann.
Búri er ágætlega langur og er mikið hrunið úr loftinu nær alla leiðina, það er ekki fyrren í seinni hlutanum sem það er slétt gólf sem endar svo í ágætis sigi niður hraunfoss. Á leiðinni sáum við umtalað gat í göngum hellisins, en það eru um 4-5 metrar uppí hann. Til að komast þangað hefði þurft fleyga og jafnvel ísöxi en ég veit ekki hversu mikið rask fylgdi því þar sem veggurinn er mjög sléttur og formaður af hraunstraum.

En auðvitað vorum við komnir þangað til að klára dæmið og við gatið eru bæði fleygar og boltar sem við þræddum og sigum niður á. Þetta voru nú ekki klettaklifuraugu heldur meiri svona iðnaðarboltar með stórum skinnum sem maður batt bara þétt kringum.

Sigið er sagt vera um 17m og komumst við að því að best er að fara vinstra megin niður/upp þegar horft er niður í gatið því þar er minnst hætta á að skemma hraunfossinn, einnig er þar brattara fyrst. Þegar niður er komið eru smá göng sem halda áfram smá spotta en magnað er að horfa upp hraunfossinn og veggina í kring sem eru mjög flottir!

Myndir

Tanngarðurinn í Tanngarðshelli
Litbrigði í Tanngarðshelli
Flott form og myndanir, Tanngarðshelli
Addi virðir fyrir sér myndanirnar.
Og auðvitað þarf að skoða þetta hátt og lágt
Allir að skoða formin
Göng í Tanngarðshelli, þetta minnir nú kannski helst bara á gamalt fjós?
Hér erum við komnir í Búra og hér eru Óðinn og Addi að líta kringum sig.
Enn að skoða..
Loftið í Búra
Horft niður um hraunfossinn.
Gummi að leggja í'ann.
Það er mikið að skoða á leiðinni, ekki bara að passa hvar maður stígur þar sem hraunfossinn er viðkvæmur.
Hér er svo Óðinn að koma niður.
Óðinn kominn aðeins lengra. Langaði að prufa eina í s/h.
Dabbi að leggja af stað af brúninni.
Það þarf að horfa niður líka.
Dabbi að komast uppá brún aftur.
Svo var Óðinn síðastur upp.