"Ykkur er boðið í brúðkaup til okkar út til Grikklands, athöfnin verður á grískri eyju sem heitir Kos"
-#já, bíddu það er nú næsta eyja við Kalymnos, hmm... þarna væri örugglega hægt að nýta ferðina heldur betur#. "Já ég held hreinlega að við komum bara" Var fljótlegt svar.

Í ferðinni voru Gummi, Óðinn, Lalli ásamt Önnu og Röggu. Við skelltum okkur til Kalymnos í 6 daga fyrir brúðkaups vins okkar sem var á næstu eyju við. Eftir að hafa farið þarna fyrir þrem árum vissum við alveg hvurslagt gersemar við vorum að ganga að þarna.
Strax fyrsta daginn um leið og draslið var komið á hótel og við komnir á vespur var haldið beint í Ahri sem er víst fyrsta svæðið sem var klifrað í á sínum tíma og eftir að hafa tekið upphitun var farið beint í Thetis 6b sem við feiluðum duglega á fyrir þrem árum og kláruðum hana með stæl enda geggjuð leið.

Næsta dag var svo farið í Kasteli þar sem auðveldu leiðirnar eru að verða worn-out en kláruðum þar frábæra leið sem við feiluðum einnig á síðast sem heitir Pillar of the sea 6a+.

Þriðji dagurinn var tekin á einu af skemmtilegri svæðunum á eyjunni sem heitir Syblegades rocks. Heilsuðum þar uppá gamlan félaga eða Phineas 5c og þrennuna á east face, Vasillis 5c, Philoxenia 6a+ og Valery&Thomas 5b+ þar sem við tókum ágætis myndir.
Tókum einnig nokkrar nýjar flottar leiðir þarna eins og Drama 6a+ og Opera 6b.

Fjórði dagurinn var tekinn í Odyssey sem er einn af vinsælustu stöðunum enda alltaf nóg um manninn þar. Þar tókum vel á því í nokkrum leiðum eins og Haryvdi 6a+, Mikrotera Kalamarakia 6b+, Poly Retsina No Good 6a omfl.

Fimmti dagur var á Afternoon og Grande Grotta sem eru klikkuð svæði en dáldið stíf, sérstaklega Grande Grotta sem er með flottustu klifursvæðum í heimi. Þar klifruðum við þónokkrar leiðir og tókum myndir en þar ber helst að nefna Blu 6a, Janas Kitchen 6a+ og á Grande Grotta tókum við magnaða leið sem heitir Monahiki Elia 6a+.

Sjötta og síðasta daginn heimsóttum við Poets svæðið og klifruðum það flottar leiðir á borð við Iris 6b, Saxonia 6a, Quando tramonta il sol 6a ásamt Anacreonte sem átti að vera eitthvað mega skemmtileg en við vorum ekki allir sammála um skemmtanagildið í henni. Þennan dag kom einnig thunderstorm sem var nú bara rigning í 3 mínútur og eldingar, svo kom aftur sól. Gummi var akkúrat að klifra Iris 6b þegar rigningin kom en sem betur fer var hann nánast kominn upp og var því nokkurnveginn í skjóli frá þakinu f. ofan leiðarendann.
Þetta var okkar síðasti dagur á Kalymnos í þetta skiptið og þá var ferðinni haldið á eyjuna Kos sem er næsta við hliðiná.

Við notuðum allan tíman sem við gátum til að klifra, en á kvöldin og eftir klifrið skoðuðum við t.d. gamlar Kastala rústir, náttúrlegar myndanir og Pothia sem er hafnarborg Klaymnos og kemur skemmtilega á óvart. Vespurnar eru flottur ferðamáti og er maður enga stund að keyra milli staða á eyjunni.

Eftir þessa 6 daga vorum við sáttir og fórum yfir til Kos í brúðkaup þar sem við hittum fleiri íslendinga og áttum frábæra daga með góðum vinum og við tók vatnasport og sólbaðsmaraþon.

Myndir

Á leið til Kalymnos frá Kos þar sem við lentum.
Chores beach á Kalymnos.
Fyrsta mál þegar dótið er komið á hótel, ná sér í vespu.
Eftir að hafa komið okkur á hótel og vespu æddum við uppí Arhi. Hér er Gummi að leggja í fyrstu leið.
DOF.
Gummi í Arhi.
Gummi klifrar í Arhi.
Lalli að tryggja í Arhi.
Óðinn klifrar svo Thetis (6b) í Arhi. Þetta kom okkur duglega af stað.
Telendos er eyjan sem blasir svo flott við úr hótelsvölunum. Sólarlagið er þar einstaklega flott.
Á öðrum degi klifruðum við í Kasteli, hér er Gummi að klifra Pillar of the sea (6a+) sem við náðum ekki að klára árið 2007.
Óðinn fylgdi á eftir upp Pillar of the sea (6a+).
Lalli sáttur eftir góðan og erfiðan dag.
Um kvöldið fórum við og skoðuðum Palace. Þarna er flottur steinbogi en klifurleiðirnar þarna eru flestar yfir 7a.
Á þriðja degi heimsóttum við svo Syblegades rocks og hér er Gummi að rifja upp gömul kynni við Phineas (5c) sem er ein af skemmtilegustu leiðum eyjanna.
Lalli var næstur upp Phineas. Ekki amarlegt að leggja í sína fyrstu leiðslu í eina af skemmtilegri leiðum sem til eru!
Útsýnið flott úr hellinum við hið Phineas.
Útsýnið flott úr hellinum við hið Phineas. Lalli glímir hér við leiðina.
Gummi leggur af stað í Vasilis.
Eftir að hafa komið upp ljósmyndaralínu í síðustu leið klifraði Gummi upp Philoxenia (6a+).
Lalli leiðir Valery & Thomas (5b+).
Góð tilfinning að klippa sig í toppakkeri eftir leiðslu.
Fjórði dagurinn var tekinn í Odyssey. Hér er Gummi að klifra.
Djöfluðumst mikið í Mikrotera Kalamarakia (6b+) og náðum að klára hana í ofanvað.
Við klifurðum þónokkrar skemmtilegar leiðir á Odyssey, en enduðum hægra megin í svæðinu.
Eftir klifrið fórum við og skoðuðum gamlar kastalarústir fyrir ofan þorpið Horio.
Gummi stendur á brún kastalaveggsins og virðir fyrir sér útsýnið.
Horft yfir Horio og í átt að Pothia.
Gert sig reddý næsta dag að klifra í Afternoon og Grande Grotta.
Óðinn baðar hendurnar í kalki áður en hann ræðst af stað.
Óðinn að klifra Janas Kitchen (6a+).
Kominn hátt í leiðina sem er með þeim skemmtilegri.
Óðinn klifrar.
Gummi að klifra Janas Kitchen.
Gummi í Janas Kitchen.
Óðinn tryggir í góðum fíling.
Grande Grotta er einn af mest ljósmynduðu klettaklifurstöðum í heimi og er það ekki af ástæðulausu. Takið eftir klifraranum vinstra megin efst.
Gummi að klifra Monahiki Elia (6a+).
Annað sjónarhorn, mjög gaman að klifra yfirhangandi með allskonar svona handföngum og dóti til að grípa í.
Hér sést hellirinn vel, Gummi er þarna efst hægra megin.
Þetta var svæðahirðirinn. Ef þú lést heyra í bréfpoka kom þessi og át allt nestið þitt !
Óðinn klifrar Monahiki Elia (6a+).
Alveg að klára, þetta tekur svoldið í.
Þegar búið er að hreinsa tvistanna út er hægt að spranga sér duglega þar sem leiðin er svo skemmtilega yfirhangandi.
Næst prufaði Lalli og tók á öllu sem hann átti.
Færðum okkur aftur yfir í Afternoon þar sem Lalli spreytti sig á 5c leiðslu.
Að komast í skarðið.
Síðasta daginn okkar fórum við í Poets svæðið, hér er Óðinn að klifra Quando tramonta il sol (6a).
Óðinn að tryggja Gumma í sömu leið.
Næst prufuðum við eina duglega stífa byrjun fyrst í topropa áður en við leiddum hana. Nafnið er Iris (6b).
Óðinn í skemmtilegu cruxi, þarna eru ekki eins mikið af handafestum og það lítur út fyrir.
Telendos frá Poets.
Sáttir eftir síðusta klifrið í bili.
Eftir klifurdag er gott að stökkva í kalda sundlaugina.
Eða synda í sjónum.
Svo er einn kaldur í desert! Lalli, Gummi, Óðinn og Ragnheiður. Á myndina vantar Önnu.