farin á mánudaginn, 26. des (annan í jólum). Þetta fer að verða mikilvægur hluti af jólahátíðinni en afsökunin fyrir að halda átinu áfram er auðfenginn á þessum tind.

Þrír ferðalangar fóru þetta skiptið, Arnar, Gummi og Jón Helgi. Héldum af stað frá Horni um ellefuleitið. Sáum tindinn blasa við okkur í byrjun ferðarinnar en svo komu úrkomuský yfir og sendu yfir okkur haglél á stærð við bláber, jólasnjó og smá vind af og til sem sá um að blása þessu upp.

Færið var með erfiðari móti núna, en það var svoldill snjór yfir klettunum og ekkert hald undir þeim. Við fylgdum hryggnum nokkuð stíft uppfyrir hálfa leið og þegar ekki var hægt að þurrspóla þetta lengur vegna festuleysis fórum við að þræða nokkur höft í auðveldari þrep þangað til að á toppinn var komið. Íshaftið sem maður fer yfirleitt alveg efst var bara frosinn mosi og húkk þetta skiptið.

Veðrið var bara nokkuð gott en skyggnið ekkert sérstakt. Ca. 11 stiga frost og ekki nema svona 5 m/s í vindhraða á hryggnum, en í aðkomunni var svona 15 m/s.
Fengum á okkur myrkur þegar við vorum komnir niður í skálina vestan við tindinn og komnir í hnédjúpan skafsnjó á jafnsléttunni. Það kom kannski mest á óvart hve lítill snjór var í fjallinu sjálfu, en hann var trúlegast allur fokinn í buskan.

Myndir

Addi á leið að Skessuhorninu fínt skyggni til að byrja með.
Addi í smá spindrifti.
Jón að búa til drykkjargat á frosna vatnsbrúsann.
Addi neðarlega á hryggnum.
Brölt á milli stalla.
Addi og Jón í leiðinni.
Jón og Addi.
Addi á hryggnum.
Gummi on the way up.
Smá hliðrun þarna.
Addi að skrapa sig upp.
Næsti stallur.
Aðeins nær.
Klettar þræddir í kuldanum.
Á brún.
Addi í síðasta haftinu.
Smá heitt að drekka og nestispása undir vörðunni.
Gummi fær sér heitan sopa.
Addi á niðurleið.
Addi
Jón
Addi og Jón á leið til baka, en það birti vel yfir þegar við vorum komnir niður.
Addi svalar þorstanum.
Skarðshorn og Heiðarhorn.
Komnir með höfuðljósin í lokin, enda myrkur skollið á.