Jólaklifrið er orðinn árlegur og hátíðlegur viðburður Íslenska alpaklúbbsins og er ávallt góð mæting og þátttaka í Múlafjall þar sem þetta er haldið ár hvert. Bæði byrjendur og vanir mæta og er því klifrað um nánast allt Múlafjallið. Einhverjir fóru Rísanda/Stíganda og einhverjir í leiðirnar austan við Ístesvæðið.

Þar sem Gummi var rifbeinsbrotinn gat hann ekki klifrað og var því í social stuði meðan Arnar og Óðinn klifruðu eina góða lænu austan við Íste og tóku Ágúst Kristján með sér sem leysti Gumma af. Þessi leið er ein af þeim sem ekki finnst nafn á í Múlanum og því erfitt að segja hvaða leið það var, en leiðin er upp þunnt haft og frekar mjótt.

Mikið var klifrað í Múlanum þennan dag og var m.a. farin ný leið vinstra megin við Íste sem heitir Espresso, en Róbert og Sigurður Tómas frumfóru hana en sú leið er boltuð og með hressandi byrjun. Gummi tók einhverjar myndir af því þar sem hann gat ekki klifrað.

Einnig eru myndir úr ferð í Grafarfoss og Ýring til að fylla uppí en Óðinn fór með Haraldi í Ýring og svo fóru Arnar og Óðinn í Grafarfossinn.

Myndir

Gengið upp Múlabrekkuna
Fjölmenni undir leiðunum
Ágúst Þór græjar sig
Andri
Óðinn byrjar að klifra
Óðinn
Óðinn
Óðinn
Óðinn
Ágúst eltir upp
Ágúst
Arnar
Sigurður Tómas frumfer Expressó
Siggi
Siggi
Siggi
Siggi
Róbert Halldórsson
Róbert
Róbert
Róbert
Margar leiðir voru klifraðar þennan dag
Fjölmenni
Íste og Pabbaleiðin
Róbert að klára upp nýju leiðina
Vinstra megin við Ístenefið
Austan við Íste
Þarna væri hægt að setja upp leið
Gengið milli svæða
Klifrað í austurhluta Múlafjalls
Arnar
Róbert klifrar Íste
Sigurður Tómas í lokaspöl Íste
Arnar á leið að Grafarfossi
Arnar að skoða snjó
Snjóklifur neðst að venju
Arnar
Arnar
Arnar
Fyrir ofan Grafarfoss
Kóf yfir leiðinni á leið til baka
Gott að komast í einn kaldann niðri
Haraldur í Ýring
Haraldur
Haraldur
Óðinn
Lokahaft
Óðinn
Óðinn
Óðinn
Óðinn
Óðinn