Það var búið að standa til í talsverðan tíma að skoða Bleiksárgljúfur enda á fallegur staður í Fljótshlíð. Hugmyndin að þessari ferð kom upp frekar hratt og var ákveðið seint kvöldið áður að skella okkur af stað enda ágætis spá fyrir svæðið og við í fríi.
Magnús Stefán leiddi feðgana Gumma og Jón Helga um gljúfrið sem var hin besta skemmtun og fórum við nokkrar ferðir þar sem við bættum myndavélunum við og þvældumst með þær um gljúfrið sem var hægt með góðri vatnsheldri harðskeljatösku sem Maggi tók með sér.

Í gjúfrinu eru nokkrir skemmtilegir staðir sem þarf að príla upp, synda, fikra sig eftir og hoppa niður fossa og undir stóra fossinum innst eru tvö myrkraherbergi sem við tókum reyndar ekki myndir af þar sem þrífóturinn var ekki tekinn með í þetta skiptið.

Það eru greinilega þónokkrir ævintýrastaðir í Fljótshlíðinni en við fórum í ísklifur síðastliðinn vetur aðeins innar í Fljótshlíð er Þórólfsgil sem inniheldur þónokkrar ísklifurleiðir sem hægt verður að skða næstu árin og eru þær af öllum stærðar- og erfiðleikagráðum.

Myndir

Efri fossinn
Gljúfrið og Eyjafjallajökull
Maggi virðir fossinn fyrir sér
Maggi og Gummi fara með myndavélatöskuna í gljúfrið.
Maggi dregur upp myndavélatöskuna
Komin upp
Gummi prílar framhjá fossinum
Fallegt umhverfi
Gummi skutlar sér yfir hyl
Frábært umhverfi
Frábært umhverfi
Gummi
Gummi
Skuggavera
Maggi að skoða myrkraherbergin
Gummi og Jón í fyrra myrkraherberginu.
Jón og Gummi
Jón og Gummi
Skuggavera 2
Jón hoppar
Undraveröld
Maggi dregur töskuna upp næsta foss
Töskuburður
Jón stekkur niður
Gummi stekkur
Gummi niðurklifrar
Taskan er næst
Jón syndir með töskuna
Maggi í loftinu
Gummi í rennibrautinni
Maggi þverar ofan fossins
Jón rennur sér niður
Jón í rennibrautinni
Jón flýtur
Maggi að kíkja fyrir hornið
Maggi að renna sér
Maggi syndir
Gummi og Jón
Taskan góða
Að komast í bílinn