Að venju var farið á Skessuhornið þessi jólin. Í ár var farið á réttum degi, eða 26. desember sem er upprunalega dagsetningin frá fyrstu ferðinni. Ég fékk engan annan en Ágúst Kristján Steinarsson til að koma með mér en það er orðið allt of langt síðan við klifruðum eitthvað saman utandyra, en við hittumst stundum í Miðgarði og tökum klifuræfingar saman innandyra.

Þetta árið var óvenjulega þurrt og var þetta með erfiðari aðstæðum sem fjallið hefur boðið uppá í þessum ferðum. Smá skafsnjór á köflum, nánast enginn ís í klettunum, mosinn alveg þurr og ófrosinn og meira að segja flestir steinarnir í klettunum lausir. Þess vegna tók þetta aðeins lengri tíma en vanalega, en við náðum þó niður í bíl án þess að nota höfuðljós.

Það var talsverður vindur yfir daginn en við vorum þó í nokkuð góðu skjóli á hryggnum þar sem vindurinn kom að vestan. Þá fékk Gummi þá snjöllu hugmynd ofarlega í fjallinu að setja drónann í loftið til að taka myndir og sjá hvernig fjallið leit út. Um leið og hann kom upp fyrir fjallstoppinn fauk hann hreinlega upp í loftið þannig að þegar ég setti hann í sport mode og fulla ferð niður var hann samt að hækka sig um svona 1-2 metra á sekúndu, svo mikið var uppstreymið. Náði samt að fljúga honum út fyrir fjallið og ná þannig að lækka flugið og koma honum skjól megin til að fljúga að okkur aftur. Gummi fékk samt smá fiðring í magann og hélt á kafla að hann myndi einfaldlega fjúka eitthvað út í buskann.

Tindurinn var nánast alveg snjólaus, bara smá frostlag það sást í grjót og mosann uppi og í fyrsta skiptið sáum við að það er göngustígur upp á topp sem liggur frá skálinni þar sem gönguleiðin er. Það er greinilega til fólk sem fer á fjallið að sumri þó mér hafi aldrei dottið það í hug hugsaði Gummi.

Eins og oft að þá var svolítið klöngur að komast niður í öllu grjótinu og pikkfrosnum snjó á köflum. Það var þá nokkuð kærkomið að komast niður á svalirnar undir fjallinu og losa af okkur broddana. Við komum svo sælir í bílinn eftir hressandi dag á Skessuhorninu, nú voru jólin komin og því tímabært að fara í bæinn og borða meiri jólamat.

Myndir

Skessuhornið blasir við
Ágúst
Ágúst
Ágúst
Ágúst
Það var talsverður vindur eins og sést
Það var ekki einu sinni snjór í brekkunni að hryggnum
Vindasöm eyðimörk
Ágúst á leiðinni upp á öxlina
Bara nýlegur foksnjór upp á öxlina
Fórum þetta broddalausir
Kominn á öxlina
Skorradalsvatn og Skorradalsháls
Ágúst í klettunum
Ágúst
Fallegt var það, og við heppnir að vera í skjólinu
Ágúst í einu haftinu
Ágúst
Ágúst
Ágúst
Fórum talsvert í útstæðu klettana vegna ísleysis
Af hryggnum
Þarna má sjá glitta í okkur ofarlega
Önnur loftmynd
Hér var dróninn kominn neðar að færa sig í skjólið
Toppurinn bara með smá snjóföl
Skarðsheiðin
Ágúst á toppnum
Þarna er stígurinn
Ágúst
Tengihryggurinn
Skarðshorn og Heiðarhorn
Á leiðinni niður
Komnir niður og Skarðs- og Heiðarhorn tignarleg
Skessuhornið seinnipartinn
Svo heilsaði tunglið upp á okkur
Kvöldskot