Í byrjun september fór Gummi með í leiðangur í Surtsey með Guðna Gunnarssyni, Þóri M. Jónssyni hellamönnum að kanna hellisop sem voru farin að birtast eftir hrun vest-suð-vestan megin í eyjunni. Þetta er hraunkantur í hlutverki sjávarhamra sem sjórinn brýtur vel á og saxar hann á hraunið á hverju ári.
Á brún hraunkantsins sýndi úrið GPS elevation 97 metra hæð og var bara lóðrétt niður í grjóthrúguna eftir hrun síðustu ára.
Þegar nánar var athugað og við farnir að undirbúa sig kom hins vegar í ljós að á brúninni sem ætlunin var að síga fram af voru tvær sprungur samsíða brúninni. Þetta sást mjög vel úr loftmynd sem við tókum með dróna til að skoða aðstæður.
Í ljósi þessara sprungna var hætt við að síga niður enda brúnin óstöðug og í raun hættuleg. Þá flugum við drónanum eins nálægt opinu og við gátum. Mikil sól var svo klettarnir í kring voru mjög bjartir en við sáum þó í myndbandinu sem kom úr því að þarna er hraunrás. Vonandi losnar þessi lausi hluti brúnarinnar fljótlega svo hægt verði að síga niður á öruggan hátt og kanna rásina.
Þegar þessu var lokið var smá tími eftir af deginum svo við skoðuðum Surtung, vestari gíginn og fórum svo á hæsta toppinn og skoðuðum eitt hellisop þar nálægt. Þá gengum við niður að Surti (eystri gígnum), framhjá skálanum og aftur yfir á tangann þar sem báturinn kemst að.
Það var alveg smá ævintýri að komast milli lands og báts á litlum gúmmíbát en það hafðist allt á endanum og kom sér vel að vera með auka klifurlínu sem var sett frá landi í litla bátinn á móti annari í stærri bátinn. Veðrið var með besta móti, logn, hlýtt veður og glampandi sól allan tímann. Það var í raun bara suttermaveður þennan dag.
Það var ansi magnað að koma á þessa eyju. Hún er friðuð og þarf leyfi til að fá að stíga þangað fæti. Þá eiga einnig við ýmsar reglur sem ber að fylgja til að ekki verði rask eða óæskilegur burður jarðefna, fræja eða lífvera af mannavöldum. Þetta eru leiðbeiningar sem maður fær sendar og fer eftir í undirbúningi og framkvæmd ferðarinnar ef leyfi fæst. Ég gæti alveg hugsað mér að koma þarna aftur í ljósmyndaferð, það er á nógu að taka í þeim efnum þarna.
